![]() |
| Hér er krökkunum deilt út frá skólanum |
Hér í Ítalíu er margt og mikið búið að gerast síðan seinasta bloggi. Ég er nú búin að vera hérna í rúmlega viku og ekki komin með heimþrá enn.
Seinustu helgi fór ég með Ilariu og skutlaði krökkunum í skólann og sótti þau. Þau eru í skólanum alveg frá mánudegi til laugardags en eru þá í staðin búin klukkan 1 alla daga, en samt þau þurfa að fara í skóla á laugardegi, ég sæi það ekki gerast á Íslandi. Hér er skólinn voðalega formlegur og passar stíft upp á krakkana, það er búið að taka okkur 7 daga að kynnast kennurum, afrit af vegabréfi og fullt af undirskriftum bara fyrir það að ég megi sækja krakkana í skólann. Það er samt voða mikil stemning að sækja krakkana því að allir foreldrarnir mæta snemma fyrir utan til þess að getað spjallað saman.
Ilaria og Stefano eiga tonn af vinum á þeirra aldri sem eiga börn á sama aldri. Í gegnum vikuna er ég búin að kynnast þeim vel því að hvert sem við förum hittum við alltaf á þau, þá oftast til að krakkarnir getað leikið sér saman en líka bara til að njóta selskaps frá hvort öðru.
Seinasta laugardag fór ég með þessum hóp út að borða á ítalskan veitingarstað. Það var svakalega skemmtilegt því að þau kunna voðalega littla ensku en vilja svo gjarnan læra svo þau spjalla endalaust við mig og reyna líka að kenna mér ítölsku í leiðinni. Maturinn á þessum stað var svakalega góður eins og bara allur Ítalskur matur. Í forrétt fengum við smá bland af smáréttum og síðan pizzur í aðalrétt.
| Vinahópurinn á veitingastaðnum |
| Forréttirnir |
Næsta dag fór ég almenningsgarð að horfa á ítalskt leirkit með krökkunum og auðvitað var matur og vín í boði eftir á.
Hér snýst allt um mat! ef fólk hittist þá er alltaf matur til staðar og nóg af honum.
![]() |
| Á leiðinni niður í vínkjallarann |
![]() |
| sækja ólívu olíu |
Á mánudaginn fór ég með Stefano í smá heimsókn til pabba Ilariu, hann býr í kringum 20 mínutur frá þeim. Ástæða heimsóknarinnar var að við vorum að fara sækja ólvíu olíu sem hann býr til sjálfur. Þessi olía er alveg þó miklu betri en þessi heima, hún er gerð aðeins úr ólívum sem eru kramdar til að fá safann úr þeim. Pabbi hennar býr í pinku littlum bæ og hann ræktar allt flest allt sem hann borðar sjálfur, hann er meira að segja með gamlan vínkjallara. Aðalástða þess að ég var að koma með Stefano þangað er að hann er með mig í smá æfingarakstri núna, svona til að sjá hvort ég höndli ítalska umferð. Það er búið að ganga mjög vel, bíllin er allavega ennþá heill og það stefnir allt í það að ég verði bara tilbúin til keyrslu alein bráðum. Keyrslan utarbæjar er kannski ekki svo slæm en eins og ég hef minnst áður á, þá eru ítalir snarklikkaðir þegar kemur að keyrslu. Þeir halda að þeir eiga alltaf réttinn og að það sé engin annar í umferðinni. Ég er svona að venjast því en það versta er að á hverjum morgni þarf ég að bakka út 70% bratta brekku upp á við út um hlið sem varla nær utan um bílinn og ekki inn á beinan veg heldur inn á aðra brekku sem er umþað bil jafnbrött. Ég lýt á björtu hliðarnar og vona þá bara að ári loknu verði ég orðin verulega góð í að bakka og kannski byrji ég bara að bakka hvert sem ég fer.
Næsta dag semsagt á þriðjudaginn þá átti sá yngsti afmæli. Giulio varð 6 ára þann dag og það átti að halda stóra veislu þar sem öllum í bekknum hans var boðið, plús fjölskyldumeðlimir. Bæði Ilairia og Stefano vöknuðu fyrir allar aldir til að byrja að baka og búa til mat, þið getið ímyndað ykkur hvað þarf mikinn mat fyrir afmæli miðað við þær lýsingar sem ég hef gefið ykkur hérna á mat.
| Kakan borin fram |
| Afgangurinn sem var farið með heim , gos fyrir lífstíð |
| Bolzena |
Ítalía er svo æðisleg, hún stendur fram úr vonum. Ég reyni að skoða mig eins mikið um og ég get og á fimmtudag og föstudag fór ég að skoða mismunandi bæji sem liggja í kringum Bolzena vatn ( smá hryllingssaga um þetta vatn, hvert sumar deyr allavega einn í vatninu og það finnst aldrei nein lík). Allavega bæina sem ég skoðaði voru Bolzena og Tuscania. Bolzena er voðalega lítið og krúttlegur bær, hann er voðalega svipaður og Montefiascone en aðeins minni.
| Tuscania |
| Tuscania |
| Einn af hellunum |
| yndislegu Stefano og Ilaria |
Allavega þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra í þetta skipti, ég kveð í bili!
Ciao
ps. Ef þið viljið sjá fleiri myndir þá getiði séð þær hérna
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.4867172966588.266803.1515222942&type=1



Elsku Klara Rún takk fyrir sérlega skemmtilegar lýsingar frá Ítalíudvöl þinni. Þú skrifar bæði hnyttinn og skemmtilegan stíl. Alltaf nýjar hliðar að koma í ljós hjá minni. Hlýtur að vera smá heimilislegt að það skuli ekki vera nein streita með tímamörk. Hef enga trú á öðru en að ítölskunámið gangi vel miðað við lýsingar þínar.
ReplyDeleteHaltu áfram á sömu braut gaman að fá að fylgjast með M amma