Tuesday, January 8, 2013

Nýarsblogg



Jæja kæru lesendur

Nú er komið nýtt ár, tímin er aldeilis fljótur að líða. Í byrjun seinasta ár hafði ég ekki minnstu hugmynd um að ég yrði stödd á Ítalíu þegar 2013 gengi í garð en ég er þó hér og ég sé svo aldeilis ekki eftir neinu. Árið 2012 var frábært ár með frábærum minningum, vonandi verður 2013 einnig eins skemmtilegt og ég get hugsað tilbaka með sama hugfar og til 2012.

Ég er allavega búin að eiga mjög góða daga í desember, bæði jól og áramót voru æðisleg ég ætla að segja ykkur frá því í stuttu máli.
Baka piparkökur með krökkunum 

Eins og ég sagði í seinasta bloggi þá ganga ítalir ekki eins mikið upp úr jólaskrauti og við, það liggur við að ég skreyti herbergið mitt meira heldur en þau skreyttu húsið. Það vantaði líka alla jóladagana eins og þegar ég fer heim til ömmu að baka, eða fer með fjölskyldunni að höggva jólatré. Það var ansi margt sem vantaði þennan desember mánuð, en þrátt fyrir það kommst jólastemmingin upp hjá mér og ég gat átt góð jól.

Geitaostur sem þau bjuggu til 
Helgina fyrir aðfangadag fór ég til Rómar til vinar míns Alberto og átti mjög góða helgi. Við fórum meðal annars á hip hop discotek þar sem hann reyndi að kenna mér hip hop, ég get ekki sagt að það hafi gengið vel og ég leit örugglega meira út eins og vélmenni sem kann varla að hreyfa sig, nóg um það en síðan kynnti hann mér fyrir vinum sínum, við fórum að upplifa róm í jólastemingu og enduðum góða helgi á að fara á miðnæturskauta aðfaranótt aðfangadags. Þetta var yndisleg helgi sem átti síðan að halda áfram í norður Ítalíu með fjölskyldu Stefanos.

Á aðfangadag vaknaði ég þó ekki við góða byrjun, ég fékk hringingu um að húsbíll fjölskyldunnar hafði bilað og við þurftum að hætta við ferðina. Þetta leit ansi illa út enda var ég ekki komin heim til Montefiascone fyrr en klukkan 2 um daginn og ekkert tilbúið fyrir aðfangadagskvöld.
Það var þó bara ekkert annað um að ræða en að halda af stað í búðina og kaupa jólamatinn og undirbúa aðfangadagskvöld á aðeins nokkrum klukkutímum.

borðið sem krakkarnir skreyttu
Ég sem elska jólin og er mjög vanaföst í jólasiðum var svo aldeilis ekki ánægð með þessa breytingu, ekki hjálpaði það heldur að ég saknaði vina og fjölskyldu og pakkarnir sem fjölskyldan hafði sent mér komust ekki til skila. Ég var orðin ansi fýld í skapinu og þegar fjölskyldan hringdi klukkan 6 til að óska mér gleðilegra jóla byrjuðu tárin að streyma, hún hreysti mig þó við og eftir það fór allt uppá við.
ég og Greta á aðfangadag

Ég sá fallega borðið sem krakkarnir skreyttu með útklipptum hjörtum og jólatónlistin var sett á, síðan var borðaður allskonar góður fiskur (það er hefð að borða fisk á aðfangadag) og eftir matin kom jólasveinnin með pakkana. Þá kom heldur betur í ljós að pakkinn sem amma sendi mér hafði komið en þau höfðu bara falið hann og létu jólasveinin síðan koma með hann handa mér. Ég var í skýjunum og krakkarnir líka ánægðir með sína pakka. Ég held þó að Stefano hafi verið mest hrifnastur af peskörlunum sem amma gaf krökkunum, ég var farin að sjá fyrir mér að hann myndi hrifsa þetta af þeim og eiga þá fyrir sjálfan sig.
Jólasveinnin komin með pakkana
Kvöldið enduðum við á að spila pictunary og borða kökur.


Næstu daga voru rosalega yndislegir líka, krakkarnir fengu svo mörg spil í jólagjöf að nánast allur tímin milli jól og nýars fór í að spila, borða sætindi og eiga notalega fjölskyldustund. Mér er virkilega farin að líða eins og ein af fjölskyldunni og einnig farin að þykja voðalega vænt um þau.


 Áramótin voru einnig frábær, allur dagurinn og kvöldið var allt frekar mikið á seinustu stundu undirbúningur þar sem þegar ég fór til Rómar hafði ég voða littla hugmynd um hvað ég væri að fara gera um kvöldið. Það eru þó oftast skemmtilegustu viðburðirnir og endaði ég á að hitta nokkrar aðrar au pair stelpur og átti ég hreint út sagt eitt af bestu kvöldum sem ég hef átt. Við borðuðum, drukkum , sáum flugelda í miðbæ Róm ( sem var rosaleg upplifun), dönsuðum, hittum skemmtilegt fólk og í þokkabót fékk ég miðnæturkossin sem mér hefur alltaf dreymt um. Ég mun muna þetta kvöld lengi.

Nýja árið byrjaði vel að mestu leyti, ég gisti á hosteli á áramótunum en ég þurfti að vera komin út fyrir klukkan 10 um morgunin. Þar sem ég fór að sofa klukkan 8 vaknaði ég afar þreytt og afar þunn, þannig að ég staulaðist á fætur og ætlaði að taka fyrstu lest heim en kommst að því þegar ég kom á lestarstöðina að fyrsta lest fór ekki fyrr en klukkan 6. Ég var ekkert svakalega ánægð með það til að byrja með en endaði á að eiga góða dag í Róm, það er alltaf hægt að sjá eitthvað nýtt í Róm og á þessum degi 1.janúar óskaði ég mér í fyrsta skipti í Trevi Foutain, ég get því miður ekki sagt ykkur hvað hún var því þá rætist hún ekki en ég skal segja ykkur það þegar hún rætist.
þegar pakkin frá mömmu og pabba
kom ásamst fleirum 

Næstu dagar voru rólegir, ég er bara búin að vera hérna heima að leika við krakkana og gera ýmislegt. Ég fékk loksins pakkan frá mömmu og pabba sem innilhéldu líka pakka frá öðrum, ég var mjög ánægð með það og meðal annars var stórt púsluspil sem krakkarnir hjálpa mér stundum við. Ég er kannski ekki búin að sjá mikið undanfarna daga og næstu vikur verða rólegar líka, aðallega út af því Stefano er fara til Afríku í 6 vikur og ég hef ekki alveg eins mikið frjálsan tíma þá.
Þó þegar hann kemur heim hef ég nánast 6 vikur til að gera það sem mér sýnist svo þá ætla ég að nýta tíman vel. Það er þó á dagskrá að heimsækja Milan fljótlega með vinkonu minni frá Róm.

Út að borða kvöldið áður en Stefano
fór til Afríku
Í gær fórum við út að borða því að Stefano var að fara til Afríku. Ilaria er að skutla honum á flugvöllin og ég er nýbúin að koma krökkunum í rúmið. Ég veit að hann er bara búin að vera í burtu í nokkra klukkutíma en mér er strax farin að líða eins og húsbónda, þar sem ég er eiginlega að koma í stað hans en aðalega því að ég þarf núna alltaf að kveikja á arineldinum og að lyfta alltaf þessum þunga eldiviði inn í húsið á klukkutíma fresti lætur mér líða ansi húsbóndalega.

Þó að Stefano verður saknað verður gaman að vera loksins ein með krökkunum og ég fæ einnig meira að gera sem er gott fyrir mig núna þar sem undanfarna daga er ég lítið sem ekkert búin að gera og maður verður ansi latur af því að gera ekki neitt. Svo nýja árið má byrja núna og ég ætla að takast á við það með trompi

Gleðilegt nýtt ár, takk fyrir það gamla og ég vona innilega að þið eigið öll gott nýtt ár.

Ciao

Krakkarnir í fínustu lopapreysunum sem amma prjónaði handa þeim