Sunday, October 28, 2012

Vika 1 liðin

Kæru vinir, fjölskylda og lesendur

Hér er krökkunum deilt út frá skólanum 

Hér í Ítalíu er margt og mikið búið að gerast síðan seinasta bloggi. Ég er nú búin að vera hérna í rúmlega viku og ekki komin með heimþrá enn.
Seinustu helgi fór ég með Ilariu og skutlaði krökkunum í skólann og sótti þau. Þau eru í skólanum alveg frá mánudegi til laugardags en eru þá í staðin búin klukkan 1 alla daga, en samt þau þurfa að fara í skóla á laugardegi, ég sæi það ekki gerast á Íslandi. Hér er skólinn voðalega formlegur og passar stíft upp á krakkana, það er búið að taka okkur 7 daga að kynnast kennurum, afrit af vegabréfi og fullt af undirskriftum bara fyrir það að ég megi sækja krakkana í skólann. Það er samt voða mikil stemning að sækja krakkana því að allir foreldrarnir mæta snemma fyrir utan til þess að getað spjallað saman.




Ilaria og Stefano eiga tonn af vinum á þeirra aldri sem eiga börn á sama aldri. Í gegnum vikuna er ég búin að kynnast þeim vel því að hvert sem við förum hittum við alltaf á þau, þá oftast til að krakkarnir getað leikið sér saman en líka bara til að njóta selskaps frá hvort öðru.
Seinasta laugardag fór ég með þessum hóp út að borða á ítalskan veitingarstað. Það var svakalega skemmtilegt því að þau kunna voðalega littla ensku en vilja svo gjarnan læra svo þau spjalla endalaust við mig og reyna líka að kenna mér ítölsku í leiðinni. Maturinn á þessum stað var svakalega góður eins og bara allur Ítalskur matur. Í forrétt fengum við smá bland af smáréttum og síðan pizzur í aðalrétt.

Vinahópurinn á veitingastaðnum
Forréttirnir
Áfengi hér er tekið voðalega léttum höndum en þau drukku öll örugglega 8-9 glös(lítil) af bjór eins og að drekka vatn bara og keyrðu síðan heim og eins og ekkert hafði í skorist.
Næsta dag fór ég almenningsgarð að horfa á ítalskt leirkit með krökkunum og auðvitað var matur og vín í boði eftir á.
Hér snýst allt um mat! ef fólk hittist þá er alltaf matur til staðar og nóg af honum.


Á leiðinni niður í vínkjallarann


sækja ólívu olíu

Á mánudaginn fór ég með Stefano í smá heimsókn til pabba Ilariu, hann býr í kringum 20 mínutur frá þeim. Ástæða heimsóknarinnar var að við vorum að fara sækja ólvíu olíu sem hann býr til sjálfur. Þessi olía er alveg þó miklu betri en þessi heima, hún er gerð aðeins úr ólívum sem eru kramdar til að fá safann úr þeim. Pabbi hennar býr í pinku littlum bæ og hann ræktar allt flest allt sem hann borðar sjálfur, hann er meira að segja með gamlan vínkjallara. Aðalástða þess að ég var að koma með Stefano þangað er að hann er með mig í smá æfingarakstri núna, svona til að sjá hvort ég höndli ítalska umferð. Það er búið að ganga mjög vel, bíllin er allavega ennþá heill og það stefnir allt í það að ég verði bara tilbúin til keyrslu alein bráðum. Keyrslan utarbæjar er kannski ekki svo slæm en eins og ég hef minnst áður á, þá eru ítalir snarklikkaðir þegar kemur að keyrslu. Þeir halda að þeir eiga alltaf réttinn og að það sé engin annar í umferðinni. Ég er svona að venjast því en það versta er að á hverjum morgni þarf ég að bakka út 70% bratta brekku upp á við út um hlið sem varla nær utan um bílinn og ekki inn á beinan veg heldur inn á aðra brekku sem er umþað bil jafnbrött. Ég lýt á björtu hliðarnar og vona þá bara að ári loknu verði ég orðin verulega góð í að bakka og kannski byrji ég bara að bakka hvert sem ég fer.


Næsta dag semsagt á þriðjudaginn þá átti sá yngsti afmæli. Giulio varð 6 ára þann dag og það átti að halda stóra veislu þar sem öllum í bekknum hans var boðið, plús fjölskyldumeðlimir. Bæði Ilairia og Stefano vöknuðu fyrir allar aldir til að byrja að baka og búa til mat, þið getið ímyndað ykkur hvað þarf mikinn mat fyrir afmæli miðað við þær lýsingar sem ég hef gefið ykkur hérna á mat.
Kakan borin fram
Ég hef komist að því að fjölskyldan er alltaf mjög sein með allt svo korter í afmæli var ennþá verið að taka seinustu kökuna út úr ofninum.

Afgangurinn sem var farið með heim ,
gos fyrir lífstíð
Afmælið heppnaðist mjög vel , fullt af öskrandi littlum ítölum hlaupandi um í nokkra klukkutíma en Giulio var mjög ánægður. Í lok afmælisins þegar búið var að bera fram kökuna þá var auðvitað vínið borið fram, það var sötrað á því á meðan krakkarnir héldu áfram að hlaupa um. Þetta lýsir meira og minna ekta ítölsku barnaafmæli.



Bolzena

Ítalía er svo æðisleg, hún stendur fram úr vonum. Ég reyni að skoða mig eins mikið um og ég get og á fimmtudag og föstudag fór ég að skoða mismunandi bæji sem liggja í kringum Bolzena vatn ( smá hryllingssaga um þetta vatn, hvert sumar deyr allavega einn í vatninu og það finnst aldrei nein lík). Allavega bæina sem ég skoðaði voru Bolzena og Tuscania. Bolzena er voðalega lítið og krúttlegur bær, hann er voðalega svipaður og Montefiascone en aðeins minni.


Tuscania
Tuscania
Tuscania er einnig sömu stærð en hefur í raun mikklu meira að bjóða en hinir bæirnir. Við fórum þangað í fyrsta lagi til að athuga tungumála skóla sem er staðsettur þarna en það kemur í ljós að 12 vikna námskeið kostar 250.000... okkur fannst það frekar dýrt svo er verð í bili bara að hlusta á ítölskuna og vona að ég skilji bráðum. Við fórum að skoða okkur um í staðin til að eyða tíma. Við duttum inn á voðalega skemmtilegt safn sem sýndu grafir frá tíma etrúa, og út frá því gátum við farið að skoða hellana sem grafirnar fundust í. Það var allt voðalega spennandi og framandi þangað til að að versta martröð mín rættist í seinasta hellinum en einn veggurinn sást ekki fyrir kóngulóm, það voru örugglega yfir 100 kóngulær þarna.. ég er ennþá með hroll eftir þessa sjón.
Einn af hellunum 
Um kvöldið fór ég loks til Viterbo, sem er borg rétt hjá Montefiascone. Viterbo er mjög gömul borg og hún var eitt sinn sumaraðstaða fyrir páfann. Fjölskyldan fór með mig þangað til þess að hitta littlu frænku Ilariu og skiptinema sem býr hjá henni núna. Þær er báðar 16 ára en rosalega fínar, frænka hennar var reyndar 15 ára að verða 16 á næsta ári svo hún er soldið ung en það stoppar hana ekki að spurja hvort ég komi með henni á disco í Róm. Það er ekki bara á Íslandi sem fólk byrjar að sukka svona ung að aldri.

yndislegu Stefano og Ilaria
Það er alltaf eitthvað í gangi hérna og í gær fór ég í afmæli til ein af vinum þeirra sem heitir Paulo. Það var voða gaman en mér líður stundum meira eins og vinur þeirra eða dóttir því að þegar við komum í afmælið þá var fólkið búið að ráða barnapíu til að leika aðeins við börnin og þá aðalega Gretu og Giulio í stað þess bara að spurja au pairinn sem þau eru að borga til að gera einmitt hluti eins og þetta.

Allavega þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra í þetta skipti, ég kveð í bili!

Ciao

ps. Ef þið viljið sjá fleiri myndir þá getiði séð þær hérna

http://www.facebook.com/media/set/?set=a.4867172966588.266803.1515222942&type=1
























1 comment:

  1. Elsku Klara Rún takk fyrir sérlega skemmtilegar lýsingar frá Ítalíudvöl þinni. Þú skrifar bæði hnyttinn og skemmtilegan stíl. Alltaf nýjar hliðar að koma í ljós hjá minni. Hlýtur að vera smá heimilislegt að það skuli ekki vera nein streita með tímamörk. Hef enga trú á öðru en að ítölskunámið gangi vel miðað við lýsingar þínar.
    Haltu áfram á sömu braut gaman að fá að fylgjast með M amma

    ReplyDelete